Hvað þarf ég að hafa með mér þegar komið er í Minniborgir?
Öll hús í Minniborgum eru leigð út með tuskum, viskustykkjum, wc- og eldhúspappír og handklæðum til að þurrka hendur. Hægt er einnig að leigja rúmföt og baðhandklæði á staðnum gegn vægu gjaldi. Einnig er hægt að fá umbúin rúm ef þess er óskað.
Hvernig geng ég frá húsinu að lokinni dvöl?
Allir gestir skulu þrífa eftir sig, og í raun skilja við húsið eins og komið var að því, nema að því tilskyldu að keypt hafi verið þrif. Hafið samband við okkur um verð á þrifum. Lögð er mikil áhersla á það að fólk skilji vel við húsin. Minniborgir áskilja sér rétt til að rukka gesti eftirá, sé hús illa þrifið.
Hvar má reykja?
Það er stranglega bannað að reykja innandyra og við útidyr eða glugga, þannig að reykur berist inn í húsin. Vinsamlegast virðið þessa reglu og ef reykt er úti við húsin, þá endilega hendið ekki stubbum annars staðar en í ruslið.

|