Hús til sölu í landi Minniborga.

Nýtt á Íslandi
Erum að hefja undirbúning á byggingu og sölu á 5 glæsilegum frístundahúsum á svæðinu okkar í Minniborgum. Nýjungin er sú að gerður verður þjónustusamningur sem tekur til allra þátta er viðkoma rekstri húsanna þ.e.a.s. viðhalds og eftirlits með húsi og lóð, tekið á móti gestum, þeim kynnt umgengni um hús og búnað, athugað með hita, glugga ofl að lokinni dvöl, hús þrifin og gerð tilbúin fyrir næstu gesti.
Semsagt, eigandi getur treyst því að allt sé í lagi. Möguleiki er á því að Minniborgir geti leigt húsin stöku sinnum henti það báðum aðilum þ.e. möguleiki er fyrir eigendur að fá leigutekjur fyrir húsið.
Hafið samband sem fyrst og kynnið ykkur nánar hvað er í boði.
Sendið
okkur tölvupóst á info@minniborgir.is eða hringið í Hólmar í síma 894 3555.
   
|