Skógarborgir II - þorp 2 er ætlað bæði hópum og einstaklingum s.s. fjölskyldum ofl. Reynt verður að leigja þessi hús út sem mest í heilar vikur á sumrin og svo helgar og virka daga á veturna. Hvert hús er 41 m2 og með tveimur svefnherbergjum og sér heitum potti. Þannig er ekkert mál að leigja eitt hús úr hringnum, jafnvel þó fólk þekki ekki íbúana í hinum húsunum. Engu að síður hentar Skógarborg II líka vel fyrir hópa þótt pottarnir séu með öðru sniði en í þorpi eitt. Til dæmis er í miðju þorpsins sameiginlegt upphitað aðstöðuhús fyrir alla til að borða í og vera saman. Þar er líka stórt sjónvarp þar sem hægt verður t.d. að horfa á kappleiki hverskonar. Einnig er sameiginleg grillaðstaða við aðstöðuhúsið. Stutt er í leikvöll fyrir börnin. Sjá verð í verðskrá.

Mynd tekin í ágúst 2007.
Hér að neðan er teikning
af Skógarborgum II, en eins og
sjá má er góður
skjólgarður umhverfis þorpið.
Þá verða einnig upphitaðar
gangstéttir og pottur við hvert hús.
í hverju húsi er fullbúið
eldhús og flest önnur þægindi
sem fylgja stærri húsunum.
Hér er hægt að skoða fleiri myndir af Skógarborg II.
|