Leiguhús 100fm - lúxushús var opnað í júní 2007
100m2 húsið, er aðeins eitt sem komið er, en það stendur við jaðar hins nýja golfvallar, sem verið er að byggja og er áætlað að opna vorið 2009. Þetta er flottasta og best búna húsið í Minniborgum, og þótt víða væri leitað. Staðsetningin er frábær eða neðst í götu 2, næst golfvellinum. Þetta hús er með alls 9 rúmstæðum. Húsið er búið t.a.m. tveimur stórum flatskjám og heimabíókerfi, þráðlausu interneti, stóru og vel búnu eldhúsi sem og gasgrilli útá verönd. Þá er notalegt að spranga um berfættur þar sem allt húsið er kynnt með gólfhita. Sannkölluð brúðkaups/forstjóra lúxussvíta. Þetta er rétta húsið fyrir golfáhuga-fjölskylduna, því aðeins tekur um 2 mínútur að rölta inn á verðandi golfvöll. Stutt er í leikvöll fyrir börnin.
Sjá verð í verðskrá. |