Leiguhúsin Grund 61
Húsin eru 61,49 fm að grunnfleti,
með tveimur svefnherbergjum með
fataskápum, og rúmgóðu
efra lofti. Samtals eru 4 tvíbreið
rúm í húsinu og ein
koja, sem gerir það mjög
hentugt. fyrir tvær fjölskyldur.
Fyrstu húsin eru nú þegar
klár til útleigu og stefnt
er að þessi hús verði
í venjulegri dags, viku,- og helgarleigu
allavega til að byrja með. Húsin
eru búin glæsilegum húsgögnum
og öllum þægindum s.s.
uppþvottavél í eldhúsi
(nú verða konurnar ánægðar),
28” steríó-sjónvörpum
og DVD spilurum, útvarpi ofl. Öll
9 rúmin eru umbúin (fer vissulega
eftir fjölda er gistir hverju sinni).
Vandaðar fjaðrapoka-dýnur
eru í öllum rúmum til
þess að allir sofi nú vel.
Rúmgóð sturta 90x90 er
á baði sem og upphengt salerni.
Önnur sturta er í geymslu húsanna
sem er ætluð til brúkunar
þegar farið er í heitu
pottana. Það þýðir
að aldrei er baðherbergið upptekið
þegar verið er að njóta
heita pottsins. Allar innréttingar
eru af vönduðustu gerð. Gasgrill
fylgir hverju húsi. Leiguverði
verður stillt í hóf á
meðan fyrirtækið er að
hasla sér völl og kynna sig.
Verð per nótt er einungis 7.900
kr, sem segja má að sé
aðeins “svefnpokapláss
verð” Næstu húsin
af Grund 61 eru nú þegar í
smíðum og verða klár
1 júní 2005 (ásamt
fyrsta skógarþorpinu). |