Forsíða | Húsin | Landið | Verðskrá | Um okkur | Golfborgir | minniborgir English

Bjarnastaðir í Blönduhlíð í Skagafirði

Minniborgir bjóða nú upp á gistingu á norðurlandi. Það hentar mörgu ferðafólki að geta bókað á sama stað gistingu á suður og norðurlandi.

Bjarnastaðir:
Minniborgir bjóða nú til leigu á snyrtilegt gamalt hús á fallegum stað í Blöndhlíð í Skagafirði. Húsið er búið 4 svefnherbergjum með gistiaðstöðu fyrir 7 persónur. Í húsinu er ennfremur eldhús, stofa, þvottahús og salerni (það er hvorki uppþvottavél né heitur pottur í húsinu). Bjarnastaðir
Húsið er gamalt sveitabýli, bygt kringum 1950 og endurspeglar því gamalt íslenskt sveitaheimili.

Frá Bjarnastjöðum er ca. 10 mín. akstur til Varmahlíðar. Þar er að finna verslun, bensínstöð, pósthús og sundlaug. Til Sauðárkróks sem er stærsta þéttbýli á norðurlandi vestra er um 30 mín. akstur. Til Akureyrar er 60 mín akstur, til Siglufjarðar 60 mín akstur, til Hofsóss er 35 mín akstur og til Hóla í Hjaltadal er 35 mín akstur.

Frá Bjarnastöðum er tilvalið að aka kringum Tröllaskagann, til Hofsóss, út Fljót, til Siglufjarðar, áfram til Ólafsfjarðar og til Dalvíkur. Frá Dalvík til Akureyrar og aftur að kvöldi til Skagafjarðar. Þá eru möguleikar á að aka inn á hálendi Íslands, hvort heldur sem er upp Mælifellsdal, til Buga, þaðan yfir í Galtará og svo niður Svartárdal til Húnavers, upp Vatnsskarð og til Skagafjarðar. Eða upp Vesturdal, austur í Laugafell og þar niður í Eyjafjörð, niður á Akureyri og Öxnadalsheiði til Skagafjarðar.
Einnig er hentar vel að fara lengri dagsferð til Mývatns.

Í Skagafirði er dægradvöl fyrir ungan sem gamlan. Þar má nefna skoðunarferðir út í Drangey sem er eyja úti á Skagafirði. Byggðasafnið í Glaumbæ sem liggur mitt á milli Varmahlíðar og Sauðárkróks. Rafting á Jökulsá eystri, styttri og lengri hestaferðir, hestasýningar ásamt fleiru.

Hægt er skoða myndir af Bjarnastöðum hér:

Þeim sem vilja kynna sér nánar dægradvöl í boði í Skagafirði er bent á eftirtalda hlekki:
 

Verið velkominn í Skagafjörð

 

 

 

Minniborgir ehf | Minni Borg Grímsnesi, 801 Selfoss | sími 868 3592| email info@minniborgir.is | Copyright ©jik2010