28.maí 2011
Folöldin á Minni-Borg.
Fyrsta folald ársins fæddist þann 27.maí. Það er rauðblesótt hryssa undan Huggun Yngri og Dropa frá Stóra-Dal. Bíðum spennt eftir 12 folöldunum þetta sumarið, ef allt gengur vel.
21.febrúar 2011
Folaldaasýning Ræktunarfélags Goða.
Það hafa sjaldan verið eins margir í hesthúsi á Minni-Borg eins og sunnudaginn 20.febrúar sl þegar ræktunarfélagið Goði var með folaldasýningu. Þar voru um 50-60 manns og 30 folöld.
Folöldin voru látin að hlaupa í reiðhöllinni fyrir dómarann Óðinn.
Besta folaldið var valið Hetja frá Hömrum, undan Nútið frá Hömrum og Þóroddi frá Þóroddstöðum, en eigandi er Auður Gunnarsdóttir. Í 2. sæti varð Nökkvi frá Þóroddstöðum undan Blökk frá Sóleyjarbakka og Keili frá Miðsitju, eigandi Bjarni Þorkelsson. Í 3. Sæti var síðan Kubbur frá Kringlu en hann er undan Perlu frá Þórisstöðum og Núp frá Núpakoti, en eigandi hans er Jón Haukur Bjarnason
Besta folaldið frá Minni-Borg var í 6-7 sæti, en það var rauð hryssa sem heitir Hagsæld, en foreldrar hennar eru Huggun Yngri frá Minni-Borg og Snær frá Austurkoti
Viljum við þakka öllum fyrir skemmtilegan dag og fyrir komuna!


10.janúar 2011
Gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir samstarfið á liðnum árum.
Fleiri trippi eru komin í hús. Trippin í tamningu eru núna 9. Tveir blesóttir 5 vetra geldingar undan Páfa frá Minni Borg. Tvö 4 vetra undan Sverði frá Austurkoti. Og þrir 3 vetra graðhestar, einn þeirra stór og fallegur skjóttur undan Drífu og Auð frá Austurkoti. Og lofandi töltari undan Ás frá Ármóti og Mjöll frá Akureyri.
1.desember 2010. Fleiri trippi komin á hús.
Fyrstu tvö trippin komu í hús í október, en þar á meðal var ein skjótt meri og jarpur geldingur, bæði undan Draum frá Minni Borg. Þau eru alþæg og lofa góðu.

1.september 2010. Vallamót Trausta og Síðsumarmót Sindra Síðsumarmót hestamannafélagsins Sindra var haldið á Sindravelli við Pétursey laugardaginn 14.ágúst sl. Lilja og Þyrnirós frá Reykjavík náðu verðlaunasæti þar, lentu í þriðja sæti í tölti með einkunnina 6,17. Flottur árangur.
.jpg)
Vallamót hestamannafélagsins Trausta fór fram á laugardegi 21. Ágúst sl. Þar mætti “Team Minni-Borg” og lét vel af sér kveða. Árangur með besta móti. Mótið gekk vel, Sunna og Prúður frá Minni-Borg unnu B-flokkinn með 8,36. Siggi og Djákni frá Minni-Borg voru í þriðja sætið í A-flokki með 8,26. Í stökk-keppni unnu Sunna og Stefnir frá Minni-Borg gullið og Lilja og Erill frá Minni-Borg voru í þriðja sætið. Í forkeppni í B-flokki fengu Lilja og Þyrnirós háar tölur fyrir hægt tölt (8,8) og yfirferðatölt (9,0). Ekki svo slæmur dagur hjá okkur
1.ágúst 2010
Hestaferðir frá Minni-Borg eru vinsælar hjá ferðamönnum, sem dvelja hjá Minniborgum. Látið er bæði vel af hrossunum og reiðleiðunum.
 Áð við Þóroddsstaði.
 Komið heim að Minniborgum.

Ánægður knapi að lokinni ferð.
12.júní 2010
Það er oft gaman að velta fyrir undan hvaða stóðhestum við erum að þjálfa. Við á Minni-Borg fórum að velta þessu fyrir okkur og komumst að því að við værum með átta hross undan Glóðari frá Reykjavík í þjálfun og þau væru öll frá Minni-Borg.

Á þessari mynd eru Svala 6 vetra undan Svanhildi frá Minni-Borg, Háfeti 6 vetra undan Hugsýn frá Minni-Borg, Hugprýði 7 vetra undan Huggun yngri frá Minni-Borg, Stefnir 7 vetra undan Svertu frá Álfhólum, Prúður 7 vetra undan Pöndu frá Stóru-Reykjum, Pandra 5 vetra undan Pöndu frá Stóru-Reykjum, Drangur 5 vetra undan Drífu frá Hraunbæ.

Á myndinni hér fyrir ofan eru Stefnir 7 vetra undan Svertu frá Álfhólum, Hugprýði 7 vetra undan Huggun yngri frá Minni-Borg, Háfeti 6 vetra undan Hugsýn frá Minni-Borg, Svala 6 vetra undan Svanhildi frá Minni-Borg, Drangur 5 vetra undan Drífu frá Hraunbæ, Pandra 5 vetra undan Pöndu frá Stóru-Reykjum, Prúður 7 vetra undan Pöndu frá Stóru-Reykjum og stóðhesturinn Þristur 5 vetra undan Fífu frá Aðalbóli, hann er með 8,18 í byggingardóm.
Þá eru öll þessi hross til sölu og eru hvert öðru glæsilegra og einstaka geðgóð í allri umgengni.
23.apríl 2010
Það er við hæfi þessa dagana að bæði Hekla og Katla eru við það að springa út. Þessar stóru og myndarlegu merar eru sannarlega eldfjöllin tvö að Minni-Borg, en þær eru báðar að koma til hjá þeim Sunnu og Lilju..jpg)
.jpg)
27.mars 2010
Sunna tók sig til og greiddi flóka úr taglinu hjá Hektori frá Minni-Borg en hann er í tamningu hjá okkur núna. Var með stóran og mikinn flóka..jpg)

Svo gerði sólin vart við sig og þá var ákveðið að drífa sig út og fara eins og einn teymingartúr. Á myndinni eru Rösk frá Eyrarbakka, Hátíð frá Stóra-Dal, Lilja og Stefnir frá Minni-Borg.

Svo finnst köttunum okkar, þeim Línu og Tomma einstaklega gott að fá sólina og grípa tækifærið og leggjast í sólbað
26.mars 2010
Á Minni-Borg er búið að vera námskeið með Sigríði Pjétursdóttur frá Sólvangi. Námskeiðið var haldið 10. og 24. mars og hefur verið mjög gaman að fylgjast með kennslu og taka þátt. Sunna og Lilja stóðu fyrir námsskeiðinu en þær hafa verið að fara í vetur til Siggu í tíma og gengið bara mjög vel og haft gagn og gaman af.
13.mars 2010
Lilja og Sunna skelltu sér til Reykjavíkur til að keppa á stórglæsilegu ístöltsmóti kvenna sem fór fram í Skautahöllinni í Laugardal. Þar þreyttu hundrað þáttakendur keppni. Lilja fór með hana Þyrnirós frá Reykjavík og Sunna keppti á Prúð frá Minni-Borg.

Mynd af Þyrnirós frá Reykjavík s.l. sumar.

26.feb 2010
Það snjóaði mikið þann 25. og 26. febrúar síðastliðinn en við á Minni-Borg létum það ekki á okkur fá og skelltum okkur út í reiðtúr en það gekk nú ekki alveg sem best að koma sér af stað, eins og sjá má á myndum af Sunnu og Prúð frá Minni-Borg.

Myndarlegur snjóskafl við innganginn í hesthúsið.
 Svo snjóaði líka aðeins of mikið innan dyra og var gaman að sjá ýmis listaverk verða til úr snjónum.
14.febrúar 2010
Lilja og Þyrnirós í Rekjavík fóru í Kópavoginn og tóku þátt í fyrstu vetraleikum Andvara 2010 sem fram fóru laugardaginn 13.febrúar. Það rigndi allhressilega þann dag og var því ákveðið að færa vetraleikana inní reiðhöll. Tæplega 70 keppendur tóku þátt og börðust hart. Lilja hreppti fyrsta sætið í flokki Konur 2. Glæsilegt hjá henni.
Janúar 2010

Það er nauðsynlegt að vera vel lýstur í skammdeginu í sveitinni. Hér leggur Lilja af stað vel merkt endurkinsmerkjum, sem og hrossið |
28.maí 2011
Fyrsta folald ársins fæddist þann 27.maí. Það er rauðblesótt hryssa undan Huggun Yngri og Dropa frá Stóra-Dal

21.febrúar 2011
Folaldaasýning Ræktunarfélags Goða var vel heppnuð
10.janúar 2011
Gleðilegt nýtt ár og þakkir fyrir samstarfið á liðnum árum. Fleiri trippi eru komin í hús
1.desember 2010.
Fyrsta tvö trippin komu í hús í október
1.september 2010
Góður árangur á mótum í síðasta mánuði. 
1.ágúst 2010
Hestaferðir frá Minni-Borg eru vinsælar hjá ferðamönnum.. meira
12.júní 2010
Það eru mörg afkvæmi undan Glóðari frá Reykjavík í þjálfun á Minni-Borg
23.apríl 2010
Það er við hæfi þessa dagana að bæði Hekla og Katla eru við það að springa út.
27.mars 2010
Sunna tók sig til og greiddi flóka úr faxinu hjá Hektori frá Minni-Borg....
26.mars 2010
Á Minni-Borg er búið að vera námskeið með Sigríði Pjétursdóttur frá Sólvangi...
13.mars 2010
Lilja og Sunna skelltu sér til Reykjavíkur til að keppa á svellinu
26.feb 2010
Það snjóaði mikið þann 25. og 26. febrúar síðastliðinn en
14.febrúar 2010
Lilja og Þyrnirós frá Reykjavík fóru í Kópavoginn og tóku þátt í fyrstu vetraleikum Andvara 2010 sem fram fóru
Janúar 2010
Það er nauðsynlegt að vera vel lýstur í skammdeginu í sveitinni. |