
Þann 19.-21. mars og 8.-10. apríl nk verður haldið reiðnámskeið að Minniborg í Grímsnesi. Innifalið er gisting í frábærum húsum í Minniborgum með aðgangi að heitum pottum, interneti og fullu fæði meðan á námskeiðinu stendur. Námskeiðið hentar byrjendum sem lengra komnum. Kennarar á námskeiðinu eru Hugrún Jóhannsdóttir og Páll Hólmarsson frá Austurkoti í Flóa, en þau eru bæði reyndir og vel menntaðir reiðkennarar með margra ára reynslu af þjálfun, kennslu og tamningum. Takmarkaður fjöldi kemst að þannig að nú er lag að nýta sér þetta tækifæri. Fyrirkomulag verður eftirfarandi:
Föstudagur: Tekið á móti gestum í Minniborgum og þátttakendur koma sér fyrir í notalegum húsum. Kvöldsnarl kl 19.00 í samkomuhúsi Minniborga. Kl 20.00; mæting í hesthús að Minni-Borg og farið yfir námskeiðið í samráði við þáttakendur, aðstaða skoðuð og hestar kynntir. Heitu pottarnir bíða klárir fyrir þá sem vilja um kvöldið.
Laugardagur: Morgunmatur kl 8-9 og kennsla hefst kl 9.30. Hestar prófaðir og bókleg kennsla til kl 12.30 en þá verður hádegismatur í matsal í hesthúsum. Kl 13.00 hefst kennsla aftur. Kaffi og heitt kakó á staðnum fyrir þátttakendur, og að sjálfsögðu er heitt á könunni fyrir foreldra og aðstandendur líka. Kvöldmatur í Minniborgum kl 19.00-20.00. Fjör í heitu pottunum fram eftir kvöldi.
Sunnudagur: Morgunmatur kl 8-9 og kennsla hefst kl 9:30 og stendur til ca kl 16.00.
Innifalið er: gisting í 2 nætur frá föstudegi – sunnudags. Fullt fæði á meðan á námskeiði stendur, hestar, reiðkennsla , aðstaða fyrir hross og hey.
Verð aðeins 45.000 per mann. Hægt er að leigja hús í Minniborgum ef t.d. fjölskyldan vill sameinast. Frábært fyrir fjölskyldur með börn og unglinga sem og lengra komna. Athugið að lágmarksþátttaka er 6 manns og hámark 12 manns á hverju námskeiði. Tilvalið fyrir einstaklinga, pör og hópa. Allar uppl í síma 868-3592 og á
www.minniborgir.is


|