Gisting og hestaferðir í einstöku umhverfi.
Yfir sumartímann bjóðum við stórum sem smáum hópum að upplifa skemmtilegar hestaferðir um falleg svæði t.d. Þingvelli. Skipulagt er þannig að gist er í Minniborgum frá sunnudegi til fimmtudags (4 nætur).
Dagur 1. Sunnudagur. Gestir koma í Minniborgir og koma sér fyrir í notalegum frístundahúsum. Kl. 20.00 er fundur fyrir alla í samkomuhúsi. Þar verður farið yfir ferðaáætlanir allra hópa, ferðatilhögun rædd nánar, og kort skoðuð.
Dagur 2. Mánudagur. Minni-Borg-Lyngdalsheiði-Kringlumýri. Morgunmatur kl 8.00. Gestir taka með sér nesti sem á að duga yfir daginn úr morgunverðarhlaðborðinu. Farið að hesthúsunum að Minni-Borg kl 10.00 og gestir fá aðstoð við að velja rétta hesta. Farið af stað um kl 11.00. Áætlað er að koma aftur í Minniborgir seinni part dags. Kvöldverður í samkomuhúsi kl. 18.30. Heitu pottarnir alltaf klárir fyrir þreytta ferðalanga.
Dagur 3. Þriðjudagur. Kringlumýri-Gjábakki-Þingvellir (Skógarhólar). Morgunmatur kl 8.00. Gestir taka með sér aftur nesti fyrir þennan dag. Farið frá Minniborgum kl 10.00. Þennan dag verður riðið í þjóðgarðinn, í gegnum skóginn, mjög skemmtileg dagleið. Áætlað er að koma aftur í Minniborgir seinni part dags. Kvöldverður í samkomuhúsi kl 18.00. (Upplagt að fara í heitu pottana og láta þreytu dagsins líða úr skrokknum).
Dagur 4. Miðvikudagur. Þingvellir-Stíflisdalur-Fellsendi. Morgunmatur kl 8.00. Gestir taka með sér nesti fyrir daginn. Riðið verður eftir skemmtilegum moldargötum, yfir læki og ár, mjög skemmtileg dagleið. Áætlað er að koma aftur í Minniborgir seinni part dags. Glæsileg grillveisla með öllu í samkomuhúsinu um kvöldið.
Dagur 5. Fimmtudagur. Morgunmatur kl 8.00. Gestir ganga frá húsunum og yfirgefa Minniborgir í síðasta lagi kl 12.00.
Innifalið:
Innifalið í verði er fullt fæði (morgun-, hádegis og kvöldverður), reiðtúrar í 3 daga, hjálmur og regngalli, gisting í Minniborgum með umbúnum rúmum, baðhandkæðum og heitum pottum. Einnig akstur á gestum þegar farið er á milli staða.
Til að fá nánari upplýsingar sendið okkur tölvupóst á info@minniborgir.is

Ekki innfalið:
Flutningur í Minniborgir fyrsta og síðasta dag, drykkjarföng, önnur en þau er fylgja málsverðum (og nesti í ferðirnar), engir áfengir drykkir. Það sem gestir þurfa að koma með sjálfir eru; góð útivistarföt, hlý aukaföt í ferðirnar, vettlingar og góðan skóbúnað, og að sjálfsögðu sundfatnað í heitu pottana.
| Verð: |
Verð á mann
4 í húsi |
Verð á mann
3 í húsi |
Verð á mann
2 í húsi |
Verð á mann
1 í húsi |
| Lengri ferð 4 nætur/ 5 dagar |
Euros |
Euros |
Euros |
Euros |
|