Gisting og fjórhjólaferðir um uppsveitir Árnessýslu.
Yfir sumartímann bjóðum við stórum sem smáum hópum að upplifa frábæra afþreyingu sem felst í því að aka um á fjórhjóli í íslenskri náttúru. Einn eða tveir geta verið á hverju hjóli. Skipulagt prógram er þannig að gist er í Minniborgum frá mánudegi til fimmtudags. 
Dagur 1: Mánudagur: Gestir koma sér fyrir í notalegum frístundahúsum með umbúnum rúmum og baðhandklæðum. Léttur hádegisverður í samkomuhúsi og farið yfir ferðatilhögun ofl er varðar dvölina, gestum kynnt aðstæður og hjólin. Kvöldmatur kl. 19:00.
Dagur 2: Þriðjudagur: Morgunmatur kl. 8:00-9:00 og svo mæta gestir í bílana kl. 10:00. Ekið á bílum ca í 20 mín, og svo farið á hjólin. Gestir taka með sér nesti eftir morgunmatinn sem er þá hádegiverður þann daginn. Farin er skemmtileg leið, stoppað á leiðinni og fallegir staðir skoðaðir s.s. Brúarárskörð, Hlöðufell, Gullfoss ofl. Ekið er eftir aðstæðum hverju sinni. Áætlaður tími í ferð 4-6 klst. Kvöldverður í samkomuhúsi kl. 19:00 og svo frjáls stund eftir það (upplagt að fara í heitu pottana og láta þreytu dagsins líða úr skrokknum).
Dagur 3: Miðvikudagur: Morgunmatur kl. 8:00-9:00 og svo mæta gestir í bílana kl. 10:00. Ekið á bílum ca í 20 mín, og svo farið á hjólin. Gestir taka með sér nesti eftir morgunmatinn sem er þá hádegiverður þann daginn. Farin er önnur leið þennan dag. Farið er inná Lyngdalsheiði frá Laugarvatni og ekið hjá hraungígnum Tintron og í átt að Skjaldbreið. Ekið er eftir aðstæðum hverju sinni. Áætlaður tími í ferð 4-6 klst. Glæsileg grillveisla með öllu (ekki áfengir drykkir) í samkomuhúsi kl. 19:00 og svo frjáls stund fram eftir kvöldi.
Dagur 4: Fimmtudagur: Morgunmatur 8:00-9:00, gestir ganga frá húsunum og yfirgefa Minniborgir, síðasta lagi kl 12.00.
Innifalið:
Innifalið í verði er fullt fæði (morgun-, hádegis- og kvöldverður), akstur á hjólum í 2 daga, hjálmur og regngalli, gisting í Minniborgum með umbúnum rúmum, baðhandkæðum og heitum pottum. Einnig akstur á gestum þá daga sem farið er á hjólin.
Athugið að hægt er að fá aukanótt gegn vægu gjaldi ef gestir vilja koma á sunnudegi.
Til að fá nánari upplýsingar sendið okkur tölvupóst á info@minniborgir.is
Kynnið ykkur „yfirlýsingu“ sem þarf að samþykkja og undirrita áður en fjórhjólaferð hefst. Athugið að áfengi og akstur eiga enga samleið.
Ekki innfalið:
Flutningur í Minniborgir fyrsta og síðasta dag, drykkjarföng, önnur en þau er fylgja málsverðum, engir áfengir drykkir. Það sem gestir þurfa að koma með sjálfir eru: góð útivistarföt, hlý aukaföt í ferðirnar, vettlingar og góðan skóbúnað, og að sjálfsögðu sundskýlu.
|