Viðskiptahugmyndin
að baki Golfborgum
Hugmyndin um hágæða
golfvöll við Minni Borg í Grímsnesi
hefur nú verið í þróun
og útfærslu í tæp tvö
ár. Í upphafi var það ekki byggingin
á golfvellinum sjálfum sem freistaði
þeirra er undirbúið hafa þetta
verkefni, heldur f.f. sú hugmynd að skipuleggja
og byggja spennandi afþreyingarsvæði
umhverfis hágæðagolfvöll. Golfáhugamenn
telja það flestir lítið mál
að aka nokkra vegalengd til að leika sínar
18 holur og halda síðan heim á leið.
Þeim fer hins vegar fjölgandi sem sjá
kosti þess að geta boðið fjölskyldu
sinni eða vinum með í för. Þannig
er auðvelt að tengja hvíld og afþreyingu
því að eyða tíma með
fjölskyldu eða vinum.
Hugmyndin að Golfborgum
hefur verið kynnt völdum aðilum og óhætt
er að segja að hún hafi vakið hrifningu
og þann hljómgrunn sem hvatt hefur aðstandendur
til að halda áfram undirbúningnum.
Golfborgir bjóða þann áhugaverða
möguleika að flétta saman vinnu og skemmtun
ef það er eitthvað sem hentar. Í
Golfborgum verður boðið upp á vandaða
funda- og ráðstefnuaðstöðu með
gistingu og veitingahúsi, svo að segja
inni á einum af betri golfvöllum landsins.
Heimsækið vef Golfborga og kynnið ykkur
betur spennandi verkefni í næsta nágrenni
við Minni Borgir.
smella hér
|