Gisting og fjórhjólaferðir um uppsveitir Árnessýslu.

Nú bjóðum við stórum sem smáum hópum að upplifa frábæra afþreyingu sem felst í því að aka um á fjórhjóli í íslenskri náttúru.
Einn eða tveir geta verið á hverju hjóli. Skipulagt prógram sem er þannig að gist er í Minniborgum frá mánudegi til fimmtudags (sumar 2009) og farið i skemmtilegar ferðir á fjórhjólum til að skoða helstu náttúruperlur suðurlands.
meira....
Gisting og daglegar hestaferðir um uppsveitir Árnessýslu.

Skipulagðar ferðir eru hafnar frá Minniborgum og er hægt að velja milli skipulagðra 4 daga ferða, eða láta okkur skipuleggja sérferð.
Njótið fyrsta flokks gistiaðstöðu að Minniborg og farið í þægilega reiðtúra um fallegar uppsveitir Árnessýslu.
meira....
Gisting og daglegar golfferðir á nágrannavöllum.
Í nágrenni Minniborga eru margir spennandi golfvellir, auk þess sem verið er að byggja glæsilegan völl í göngufjarlægð.
Getum skipulagt sérstakar golfferðir fyrir hópa með stuttum fyrirvara, þar sem spilað er á einum eða fleirri völlum.
Gisting og daglegar veiðiferðir.
Tökum að okkur að skipuleggja dagsferðir í veiði fyrir þá sem gista hjá okkur, t.d. í Brúará, Þingvallavatn og Apavatn.
Sendið póst info@minniborgir.is og berið fram óskir.
|